Nýlega fór fram fyrri hlut keppninnar um Gyllta Glasið 2021, sem var undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppninni í ár er frá 2.490 kr til 4.000 kr og völdu vínbirgjar vínin í þessa keppni. Í þessum fyrri hluta keppninnar voru vín frá Nýja heiminum, þ.e. frá löndum sunnar við miðbaug ásamt Norður Ameríku. Einnig var sérstakur rósavínsflokkur, en þar var ekkert verðþak og máttu vínin koma hvaðan sem er úr heiminum, þurftu bara vera árgangsmerkt.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Grand Hótel 9.maí sl. og Vínþjónasamtökin kunna þeim allra bestu þakkir fyrir aðstoðina, auk þess sem Grand Hótel eru færðar bestu þakkir fyrir frábæra aðstöðu.
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough, margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna, ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki (ég var svo heppinn að vera í þeim hópi) og Vínþjónasamtökin þakka þeim fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.
Það voru 5 hvítvín, 10 rauðvín og 2 rósavín sem hlutu Gyllta glasið 2021 samkvæmt hlutföllum vína sem skiluðu sér í keppnina. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin. Hér að neðan er yfirlit yfir vínin sem hlutu Gyllta Glasið í ár. Númerið á undan hverju víni er vörunúmer vínsins hjá ÁTVR.
Verðlaunavínin
Hvítvín:
07948 Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2020, 3.290 kr
06520 Montes Alpha Chardonnay 2019, 3.298 kr
07880 J.Lohr Riverstone Chardonnay 2019, 3.582 kr
12412 Château St. Michelle Riesling 2019, 2.990 kr
077946 Villa Maria Private Bin Riesling 2019, 2.690 kr
Rósavín:
23281 Tommasi Baciorosa Appassionato 2020, 3.199 kr
25547 Torre Mora Scalunera Etna Rosato 2019, 2,399 kr
Rauðvín:
12671 Trivento Golden Reserve Malbec 2019, 3,099 kr
08023 J.Lohr Seven Oaks Cabernet Sauvignon 2018, 3.780 kr
10914 Emiliana Coyam 2018, 3.899 kr
21125 Montes Twins 2019, 2.499 kr
02497 Trapiche Gran Medalla Malbec 2017, 3.999 kr
05087 Catena Malbec 2018, 3.390 kr
06488 Lindemans Bin 45 Cabernet Sauvignon 2019, 2,499 kr
23865 Trapiche Perfiles Textura Finca Malbec 2018, 2.999 kr
25196 1000 Stories Cabernet Sauvignon 2018, 3.799 kr
11094 Beringer Founders Est Cabernet Sauvignon 2018, 2.999 kr
Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þáttöku og óska sigurvegurum til hamingju.