Þó svo að 2014-árgangurinn hafi verið í lakari kantinum borið saman við fyrri árganga þá má samt finna góð vín inn á milli, því góðir framleiðendur gera góð vín nánast sama hvernig viðrar. Þannig hefur vín dagsins fengið 91-93 stig hjá Robert Parker og Wine Spectator á nær hverju ári allt frá árinu 2008.
Vín dagsins
Saga Marques de Murrieta nær aftur til ársins 1852 og mun víngerðin vera í hópi brautryðjenda í víngerð í Rioja, en víngerðin ku hafa verið sú fyrsta til að markaðssetja vín sín utan Spánar. Vín dagsins er Reserva frá árinu 2014. Það var í tunnum úr nýrri amerískri eik í 2 ár og svo á flöskum í 18 mánuði áður en það fór í sölu.
Marques de Murrieta Rioja Reserva 2014 er múrsteinsrautt á lit og unglegt. Í nefinu finnur maður leður, pipar, sólber, vanillu og eik. Í munni eru stinn tannín, góð fylling og snörp sýra. Gott berjabragð, eik, leður og krydd í góðu eftirbragðinu. Fyrirtaks steikarvín. Mjög góð kaup (3.399 kr). 91 stig.
Hvað segja hinir?
Wine Enthusiast gefur 88 stig
Robert Parker gefur 93 stig
Wine Spectator gefur 92 stig