Nýlega fjallaði ég um Vino Nobile di Montepulciano frá Poliziano og nú er komið að litla bróður – Rosso di Montepulciano. Þetta vín er líkt og stóri bróðir gert úr þrúgunni Sangiovese, reyndar að viðbættu 20% Merlot. Vínið er látið þroskast í alls 8 mánuði fyrir átöppun á flöskur – um þriðjungur er settur í tunnur úr amerískri eik (tunnurnar hafa verið notaðar einu sinni áður).
Poliziano Rosso di Montepulciano 2016 er kirsuberjarautt á lit, unglegt með sæmilega dýpt. Í nefinu finnur maður kirsuber, lakkris, pipar og smá skógarbotn. Í munni eru nokkuð ljúf tannín, ágæt sýra og fínt jafnvægi. Rauð ber og lakkrís ráðandi í ágætu eftirbragðinu. Hentar vel með ítölskum mat – kjöt, pasta, sveppir og harðir ostar. Góð kaup (2.590 kr).