Við vínskríbentar á Íslandi höfum keppst um að ausa lofi á vínin frá Luis Cañas í vetur. Það var einkum Reserva 2011 sem kveikti í okkur enda fádæma gott vín þar á ferð. Reserva 2012 var ekki alveg í sama gæðaflokki en Gran Reserva 2011 var ákaflega gott. Nú er röðin komin að fjölskyldustoltinu – selección de la Familia, sem er gert úr þrúgunni Tempranillo en auk þess er smávegis af Cabernet Sauvignon (15%) bætt í vínið til að gefa því meiri fyllingu. Vínið fékk að liggja í eikartunnum í 20 mánuði áður en það var sett á flöskur – helmingurinn á tunnum úr franskri eik en helmingurinn á tunnum úr amerískri eik. Framleiðsla þessa árs fór á alls 125.250 flöskur.
Bodegas Luis Cañas Reserva Selección de la Familia 2012 er fallega kirsuberjarautt á lit, unglegt að sjá en komið með örlítinn þroska. Í nefinu finnur maður lakkrís, leður og sumarblóm, ásamt pipar og vott af vanillu. Í munni eru þétt tannín, góð sýra og flottur ávöxtur. Leður, plómur, ögn af lakkrís og eik í þéttu eftirbragðinu sem heldur sér vel. Þetta er vín fyrir stórar steikur og fór vel með grilluðum nautakótilettum. Mjög góð kaup (3.699 kr). Á eftir að njóta sín vel næstu 7-10 árin. 92 stig.