Sancerre-vínin frá Pascal Jolivet eru okkur að góðu kunn enda rómuð fyrir gæði. Pascal Jolivet framleiðir einnig vín í línu sem kallast Attitude, en samkvæmt flokkunarreglunum í Loire flokkast vínin sem Vin de Pays du Val de Loire, eða sveitavín frá Loire-dalnum. Það er þó varla hægt að merkja að þetta séu eitthvað minni vín en mörg önnur frá Loire, nema kannski í verðinu. Í þessari vörulínu eru framleidd 3 vín – hvítvín (Sauvignon Blanc), rósavín (Pinot Noir, Gamay og Cabernet Franc) og rauðvín (Pinot Noir). Aðeins eitt þessara vína er að finna í hillum vínbúðanna – hvítvínið – sem er vín dagsins.
Pascal Jolivet Sauvignon Blanc Attitude 2016 er ljóssítrónugult á lit, með angan af sólberjalaufum, ferskjum og sítrus. Í munni er vínið þurrt, nokkuð ágeng sýra, með greipaldin og sítrónugras í eftirbragðinu. Þægilegt matarvín með sushi, skelfiski og ljósum pastaréttum. Góð kaup (2.398 kr). 87 stig.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]