Vín dagsins er nokkuð sérstakt að því leyti að við gerð þess er notast við forna aðferð sem var að mestu aflögð. Stærstur hluti þrúganna (Sangiovese) sem fara í vínið er tíndur í september og látinn gerjast í stáltönkum. Um þriðjungur þrúganna er hins vegar látinn vera áfram á vínviðnum þar til þær eru aðeins farnar að þorna, en þá eru þær tíndar og bætt út í vínið sem fær svo að gerjast á ný. Hluti vínsins er svo látinn liggja í notuðum eikartunnum áður en endanleg blöndun fer svo fram. Útkoman er vín með góðu berjabragði og smá sultu.
Castello Banfi Stilnovo Governo all’Uso Toscana IGT 2014 er kirsuberjarautt á lit og unglegt að sjá. Í nefinu eru kirsuber, plómur, krydd og vottur af eik. Í munni eru mjúk tannín, hófleg sýra og fínn ávöxtur. Rauð berjasulta og smá súkkulaði ráðandi í ágætu eftirbragðinu. Góð kaup (2.290 kr). 88 stig. Athugið að í hillum vínbúðanna er nú kominn 2015-árgangurinn, en sá þykir ívið betri en 2014 í Toscana (sem var þó ágætur).
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]