Jæja, það hefur verið heldur rólegt hérna á síðunni að undanförnu og lítið um skrif þar sem ég hef verið önnum kafinn við að taka eldhúsið mitt í gegn. Það sér nú loks fyrir endann á því og vonandi hægt að hefja vínprófanir á ný. Ég náði þó að gefa mér tíma til að líta á hvaða nýjungar hefðu borist í hillur vínbúðanna nú um mánaðamótin og þar kennir ýmissa grasa. Ég ætla þó sérstaklega að benda ykkur á vín dagsins, sem kemur frá Beronia á Spáni. Þetta vín er nefnilega ekki framleitt á hverju ári, heldur aðeins þegar árferði hefur verið gott og gæðin nægilega mikil. Vínið er gert úr þrúgunum Tempranillo og Graciano ásamt nokkrum dropum af Mazuelo. Vínið er látið þroskast í 2 ár á tunnum úr amerískri og franskri eik og svo fær það að þroskast önnur 2 ár að í flöskum að lágmarki áður en það fer í sölu.
Beronia Rioja Selección de 198 Barricas Reserva 2009 er dökkkirsuberjarautt á lit með góða dýpt og smá þroska. Í nefinu finnur maður tóbak, súkkulaði, þurrkaða ávexti, lakkrís og plómur. Í munni eru fín tannín, góð sýra og fínasta jafnvægi, góður ávöxtur. Kirsuber, balsamico, súkkulaði og krydd í góðu eftirbragðinu sem heldur sér vel. Flott matarvín fyrir stórar steikur en einnig fyrir harða osta. Mjög góð kaup (3.399 kr). 90 stig.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]