Víngerð Hess í Kaliforníu framleiðir nokkur prýðisgóð vín sem hafa hlotið fínar umsagnir gagnrýnenda. Nýlega komu vín frá Hess í hillur vínbúðanna, en það eru þó ekki stóru boltarnir sem um ræðir, heldur vín í línu sem kallast Hess Select. Í þeirri línu eru gerð 6 mismunandi vín – 2 hvít og 4 rauð – og þrjú þeirra fást nú í vínbúðunum, bæði hvítvínin og svo vín dagsins, Cabernet Sauvignon. Vínin í Hess Select-línunni eru kennd við norðurströnd Kaliforníu – North Coast – sem er yfirheiti vínræktarhéraðanna norðan við San Francisco (innan þessa svæðis eru m.a. Napa Valley, Sonoma, Russian River og fleiri þekkt svæði í Kaliforniu). Reglur þessa svæðis kveða á um að sé vínið nefnt sem einnar þrúgu vín þurfi a.m.k. 75% þrúganna sem fóru í vínið að vera sú þrúga sem tilgreind er á miðanum, en allt að 25% geta verið aðrar þrúgur. Vín dagsins er 78% Cabernet Sauvignon, 10% Petite Sirah, 6% Malbec, 3% Merlot og 3% Cabernet Franc. Það er látið liggja í 15 mánuði á tunnum úr amerískri og franskri eik áður en það er sett á flöskur.
Hess Select Cabernet Sauvignon North Coast 2014 er rúbinrautt á lit, unglegt með sæmileg dýpt. Í nefinu finnur maður sólber, myntau, vanillu og krydd. Í munni eru ágæt tannin, góð sýra, þokkalegt jafnvægi, fínn ávöxtur. Sólber og tóbak í ágætu eftirbragðinu. Létt og þægilegt vín sem skilur ekki mikið eftir sig (2.699 kr). Ágætt matarvín með pasta, pizzum, grilluðu kjöti og ostum. 86 stig
