Menn höfðu ekki mjög miklar væntingar til 2016-árgangsins í Búrgúndí. Eftir einn mildasta vetur í manna minnum urðu vínekrurnar fyrir áfalli þegar gerði hörkufrost í apríl og svo kom haglél í maí. Uppskeran varð ekki mjög stór en það sem kom í hús skilaði ágæt gæðum.
Jean-Claude Boisset stofnaði víngerð sína í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar og byggði upp stöndugt fjölskyldufyrirtæki sem börn hans Natahalie og Jean-Charles hafa nú tekið yfir. Líkt og svo margar víngerðir í Bourgogne þá framleiðir vínhúsið fjölmörg mismunandi vín – rétt rúmlega 100 eða svo…
Jean-Claude Boisset Bourgogne Pinot Noir Les Ursulines 2016 er ljósrautt á lit, unglegt með sæmilega dýpt. Í nefinu finnur maður hindber, jarðarber og hvítan pipar. Í munni eru lítil tannín, ágæt sýra og ávöxtur en vantar aðeins fyllingu. Ágætis matarvín fyrir ljóst fuglakjöt, pasta og fiskrétti (2.899 kr). 87 stig.
![yasr-loader yasr-loader](https://www.vinsidan.is/wp-content/plugins/yet-another-stars-rating/includes/img/loader.gif)