Í gær fjallaði ég um vín frá Kirkland Signature, sem er framleitt sérstaklega fyrir Costco-verslanirnar víða um heim. Vín dagsins er líka Costco-vín, að þessu sinni frá Rioja á Spáni.
Kirkland Signature RIoja Reserva 2012 er kirsuberjarautt, með byrjandi þroska. Í nefinu finnur maður kirsuber, ameríska eik og krydd. í munni er ágæt fylling, tannín aðeins farin að mýkjast og sýran er hæfileg, keimur af kirsuberjum, plómum, vanillu og smá anís í góðu eftirbragðinu. Mjög góð kaup. 88 stig.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]