Víngerðin Roda í Rioja-héraði framleiðir feiknagóð rauðvín í klassískum Rioja-stíl, og eru nokkur þeirra fáanleg í vínbúðunum. Sterkasta tengingu við Ísland hefur vínið Sela. Eigandi Roda mun vera mikill Íslandsvinur og mikið fyrir að veiða í Selá í Vopnafirði, og þaðan mun nafnið á Sela vera komið. Vínið er að mestu gert úr Tempranillo, en örlitlu Graciano hefur einnig verið laumað út í.
Bodegas Roda Rioja Sela 2013 er kirsuberjarautt, ungt, ágæt dýpt. Í nefinu eru kirsuber, tóbak, pipar, fjólur og eik. Í munni eru mjúk tannín, góð fylling, leður og tóbak, ágætur ávöxtur en eftirbragðið aðeins í styttra lagi. Smellpassar með lambi. Góð kaup (3.999 kr). 90 stig.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]