Um daginn fjallaði ég um elstu víngerð Bandaríkjanna – Brotherhood winery – sem hefur verið starfandi frá árinu 1839. Vín frá þessari rótgrónu víngerð eru væntanleg í hillur vínbúðanna í febrúar og vel þess virði að prófa þau.
Brotherhood Merlot 2012 er kirsuberjarautt á lit, unglegt, með angan af kirsuberjum, skógarberjum, pipar og eik. Í munni er það frísklegt, með þægilegt berjabragð, kryddað, með eikarkeim. Hentar vel með rauðu kjöti og ostum.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]