Ég hef áður fjallað um hin stórgóðu lífrænu vín frá Casa Lapostolle í Chile. Lífræna línan þeirra nefnst Cuvée Alexandre og alls eru 8 mismunandi vín í þessari línu (reyndar tvö Syrah frá mismunandi vínekrum). Tvö þessara vína eru fáanleg í hillum vínbúðanna – Chardonnay og Cabernet Sauvignon – en vonandi eiga fleiri vín úr þessari frábæru línu eftir að rata í hillur vínbúðanna síðar. Cabernet Sauvignon sem hér er fjallað um er blanda Cabernet Sauvignon (85%), Carmenere (14%) og Cabernet Franc (1%) og kemur frá Colchagua-dalnum í Chile.
Lapostolle Cuvée Alexandre Cabernet Sauvignon 2013 er dökkrúbínrautt á lit, með góða dýpt, unglegt með fallega tauma. Í nefinu eru plómur, lakkrís, leður, amerísk eik, pipar og vanilla. Í munni eru góð tannín, slatti af sýru, lakkrís og leður ásamt eik og pipar í eftirbragðinu. Hentar vel með lambi og nautakjöti. Frábær kaup (2.998 kr).
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]