Á suðaustur-hluta Spánar er héraðið Murcia, og í því héraði er vínræktarsvæðið Yecla að finna. Þar þrífst þrúgan Monstrell með ágætum og frá Yecla eru nú að koma fram hin prýðilegustu vín sem yfirleitt eru á mjög hagstæðu verði. Þrúgan Monastrell gengur reyndar undir nafninu Mourvedre í Frakklandi, og í Ameríku og Ástralíu kallast hún líka Mataro. Þær eru reyndar ekki nema tvær tegundirnar af Monastrell sem fáanlegar eru í Vínbúðunum, en mættu að ósekju vera fleiri, því þessi vín eru bragðgóð og aðgengileg.
Bodegas Castano Yecla Hécula Monastrell 2012 er dökkrúbínrautt á lit, unglegt að sjá. Þægileg angan af skógarberjum, myntu, lakkrís, plómum og kryddi, sem skilar sér vel í góðu bragðinu. Sæmileg tannín og ágæt sýra, gott jafnvægi, en það vantar herslumuninn á það þetta vín fái fjórðu stjörnuna hjá mér (kannski níska í mér?) – örlítil beiskja sem dregur það aðeins niður. Mjög góð kaup (2.255 kr).
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]