Vínin frá ástralska vínframleiðandanum Rosemount voru lengi í uppáhaldi hjá mér, en svo skildu leiðir okkar þegar ég flutti til Svíþjóðar, því þessi vín voru ekki alltaf til í hillum þeirra vínbúða sem ég verslaði í. Þegar ég svo flutti heim á ný eftir áratug í Svíþjóð hafði smekkur minn breyst aðeins – ekki jafn mikið um shiraz og chardonnay líkt og áður var. Það var því ánægjulegt að endurnýja kynnin við demantalínuna frá Rosemount á dögunum. Þessi vín hafa yfirleitt verið ágæt miðlungsvín á góðu verði – ekkert fancy en svíkja aldrei. 2012-árgangurinn var þó óvenjugóður miðað við fyrri árganga, en ástralir hafa átt nokkuð erfitt undanfarin ár vegna hita, skógarelda og þurrka.
Rosemount Diamond Label Chardonnay 2012 er strágult, fallegt í glasi. Eik, sítrus, ferskjur og papaya í nefi. smjörkennt eikarbragð, örlítill hnetukeimur, sítrónubörkur og ferskjur í eftirbragðinu. Það nýtur sín betur með mat en eitt og sér – vantar smá frískleika til þess að standa sig vel á eigin vegum. Því miður ekki fáanlegt í vínbúðum ÁTVR en kostar 1.749 kr í Fríhöfninni – góð kaup.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]