Flaggskip Vega Sicilia og Ribera del Duero er Unico, á því er væntanlega enginn vafi. Þetta vín er eitt af þeim stóru í vínheiminum, á stalli með Pétrus, Latour, Mouton Rothschild og Domaine Romanee-Conti, og því einstakt tækifæri fyrir vínnörda eins og mig að fá að smakka þetta vín.
Vega Sicilia Unico er gert úr Tempranillo og Cabernet Sauvignon (þessi árgangur er 85% / 15%) og hvergi er til sparað við gerð vínsins – aðeins bestu berin af bestu vínekrunum fara í þetta eðalvín. Að lokinni gerjun hefst langt þroskaferli, þar sem vínið er látið þroskast í alls 9 ár (6 ár í tunnum og 3 í flösku) áður en það er sett í sölu. Í bestu árgöngum er vínið að fá toppeinkunn hjá öllum víngagnrýnendum, en í lakari árgöngum fær vínið „bara“ mjög góða einkunn!
Vega Sicilia Unico 2004 er dökk-múrsteinsrautt, sýnir þroskamerki, fallegir taumar í glasinu. Í nefinu er eikin áberandi ásamt leðri, súkkulaði, rauðum berjum, smá myntu og kandís. Í munni er vínið silkimjúkt og hreinlega nuddar á manni bragðlaukana. Eftirbragðið nánast endalaust. Þetta vín kostar rétt rúmlega 30.000 krónur og er ekki svo slæm fjárfesting!
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]