Ég hef áður sagt að vínin frá Montes-víngerðinni í Chile séu pottþétt kaup og ávallt peninganna virði. Það á líka við um Montes Twins Malbec Cabernet Sauvignon 2013. Það er rúbínrautt á lit, fjólublá rönd, ágæt dýpt. Í nefið koma brómber og sólber, vanilla og eik, vottar fyrir súkkulaði og tóbaki. Ágæt tannín, vanillu og eikarkeimur í eftirbragðinu. Góð kaup (2.199 krónur). Vínið stóðst tengdamömmuprófið með ágætum, og verður að teljast efnilegur húsvínskandidat.
Vínsíðan
Smelltu hér til að gefa einkunn[Alls: 0 Meðaltal: 0]