Palacios-fjölskyldan hefur náð frábærum árangri í víngerð víða á Spáni, líkt og áður hefur verið fjallað um hér á síðunni, og Alvaro Palacios var valinn maður ársins 2015 hjá breska víntímaritinu Decanter. Alvaro Palacios gerir frábær vín í Priorat-héraðinu, og í Bierzo er samstarfsverkefnið Descendientes de J. Palacios (Alvaro og frændi hans Ricardo Perez Palacios). Bróðir Alvaros, Rafael Palacios, gerir fín vín í Valdeorras, og svo á fjölskyldan vínekrur í Rioja, og þaðan koma vín undir nafninu Palacios Remondo. Frá Palacios Remondo kemur m.a. vínið Palacios Remondo Rioja La Vendimia 2013, sem er gert úr blöndu af Tempranillo og Grenace (50/50-blanda). Það er dökk-fjólurautt, unglegt að sjá, með þægilegri angan af eik, kryddum, fjólum og kirsuberjum. Í munni er vínið með mjúkum tannínum, ágætis fyllingu og eftirbragði sem heldur sér ágætlega. Berin koma betur fram í eftirbragðinu ásamt örlitlu súkkulaði. Ágætis vín á góðu verði (2.490 kr).
Einkunn:
Hefur þú smakkað þetta vín? Gefðu því einkunn: