Þeir sem þekkja til vína frá Chile kannast kannski við Leyda-dalinn, en þaðan koma mörg prýðisgóð vín, einkum Pinot Noir og Sauvignon Blanc. Víngerð hófst ekki á þessu svæði fyrr en í lok síðustu aldar, og var einkum að þakka langri vatnsleiðslu sem lögð var til að veita vatni frá Maipo-ánni yfir í Leyda-dal. Viña Leyda eru frumkvöðlar á þessu svæði og framleiða fjölda gæðavína í mismunandi útfærslum. Nú eru fáanleg tvö vín frá Viña Leyda í vínbúðunum og vonandi fáum við að smakka fleiri vín frá þessum ágæta framleiðanda.
Leyda Sauvignon Blanc Leyda Valley Reserva 2015 er strágult á lit, fallegt í glasi. Áberandi sítrusilmur ásamt grænum eplum, smá ferskjum og jafnvel ástaraldinum. Í munni er gott sítrusbragð, dauf steinefni og gras með snarpri sýru og góðum ávaxtakeim í eftirbragðinu, þar sem ástaraldinin koma aðeins betur fram í lokin. Prýðisgott vín sem óhætt er að mæla með.
Einkunn:
Þitt álit: