Líkt og svo margir íslendingar fer ég af og til í gegnum Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli, og líklegt er að margir fari þar í gegn á næstu mánuðum, nú þegar sumarleyfi hefjast og menn flýja landið í leit að sól. Hér á síðunni hefur verið listi yfir bestu kaupin í Fríhöfninni, og hefur hann almennt vakið lukku hjá þeim sem hafa sótt hann, enda þægilegt að hafa listann útprentaðan eða bara í símanum þegar farið er í Fríhöfnina.
Ég fór þarna í gegn s.l. föstudagskvöld á leið heim frá ráðstefnu, og ákvað í framhaldinu að fara yfir þær nýjungar sem er að finna í hillunum. Aðferðafræðin var einföld – flett upp á heimasíðu Fríhafnarinnar og léttvínum raðað eftir því hvenær þau fóru í hillurnar. Ef ég hef misst af einhverjum spennandi vínum er skýringin því líklega sú að vínið hefur ekki raðast rétt á vef Fríhafnarinnar.
Nýjungarnar eru nær eingöngu evrópsk vín, og að lang mestu leyti rauðvín frá Frakklandi og Ítalíu. Nokkur ný vín frá Spáni og Suður-Afríku hafa líka komist í hillurnar. Áhugaverðustu nýjungarnar eru að mínu mati eftirfarandi:
Vín undir 2.000 krónum
- Frescobaldi Remole (Ítalía) – 1.679 kr
- Vega Rioja Crianza (Spánn) – 1.499 kr
Vín á bilinu 2.000 – 3.000 krónur
- Olivier Ravoir Vacqueyras (Frakkland) – 2.999 kr
- Tommasi Surani Heracles Primitivo (Ítalía) – 2.399 kr
- Bodegas Muriel Reserva (Spánn) – 2.099 kr
- Bodegas Emina Crianza (Spánn) – 2.999 kr
- E. Guigal Crozes Hermitage (Frakkland) – 2.999 kr
Vín yfir 3.000 krónum
- Olivier Ravoir Gigondas (Frakkland) – 3.799 kr
- Frescobaldi Castelgiocondo Brunello di Montalcino (Ítalía) – 6.299 kr
- Rivetto Barolo (Ítalía) – 5.999 kr
- Ciacci Piccolomini d’Aragona Brunello di Montalcino (Ítalía) – 6.599 kr
Að lokum kemur hér uppfærður innkaupalisti fyrir Fríhöfnina.