Vínin frá Beronia í Rioja eru nokkuð örugg kaup, a.m.k. þau vín sem ég hef smakkað hingað til. Nýlega smakkaði ég tvö vín sem ég hef ekki prófað áður, úr þrúgum sem ekki rata á mitt borð á hverjum degi. Þetta eru einnar þrúgu vín
Beronia Graciano Collection 2011 er gert úr þrúgunni Graciano. Það er kirsuberjarautt, unglegt. Berja- og vanillukeimur, ásamt fjólum og kryddjurtum (einkum mynta) og smá súkkulaði. Í munni eru tannínin farin að mýkjast aðeins, jafnvægið er gott og ágætis fylling. Gott eftirbragð sem heldur sér vel. Einkunn: 8,0 – Góð kaup á 2.765 krónur. Mæli eindregið með þessu víni! Hentar vel með ostum og spænskri skinku, ræður vel við grillaðan kjúklingu og myndi örugglega geta tekið fleiri grillrétti. Þetta vín á býst ég við að kaupa oftar!
Beronia Mazuelo Reserva 2008 er gert úr þrúgunni Mazuelo. Kirsuberjarautt, ekki mikil dýpt. Berjakeimur, þurrkaðir ávextir, lakkrís. Í munni var það full súrt fyrir minn smekk, skortir fyllingu og var ekki nógu spennandi, fannst mér. Einkunn: 6,5. Kostar 2.666 krónur. Ég hef ekki hugmynd um hvernig þessi þrúga á að vera og væri alveg til í að smakka fleiri vín af þessari tegund til að átta mig betur á henni.