Það er löng hefð fyrir því að útnefna vín ársins hér á Vínsíðunni. Það var fyrst gert árið 1998 og nánast á hverju ári síðan þá. Það hefur verið mikið að gera hjá mér á öðrum vettvangi undanfarnar vikur og því lítill tími gefist til vínsmökkunar og til að líta um öxl. Ég ætla þó að halda í hefðina og gera upp árið sem senn er á enda og að lokum útnefna Vín Ársins 2014.
Ég var óvenjulatur að skrifa á þessu ári, og mér telst til að ég hafi ekki fjallað um nema tæp 40 vín hér á Vínsíðunni. Mér sýnist hins vegar að ég hafi gert um 60 vínum til viðbótar skil á Vivino-appinu. Hér voru á ferðinni vín í öllum gæðaflokkum, frá Era Montepulciano d’Abruzzo 2012 til Chateau d’Yquem 1994. Eftirfarandi vín eiga skilið að vera nefnd sérstaklega, því þar fara vel saman gæði og verð.
- Burgans Rias Baixas Albarino 2012
- Concha y Toro Marques De Casa Concha Cabernet Sauvignon 2011
- Baron De Ley Finca Monasterio Rioja Tempranillo 2010
- Altano Douro 2012
- Numanthia Termes Toro 2010
- Spy Valley Marlborough Sauvignon Blanc 2013
- Peter Lehmann Futures Shiraz 2011
Vín ársins verður svo útnefnt þann 31. desember.