Ég hafði ætlað mér að gera úttekt á þeim kassavínum sem eru í boði í Vínbúðunum, en ekki komið því í verk fyrr en nú. Eins og gefur að skilja er frekar dýrt að gera almennilega úttekt (það eru um 100 kassavín fáanleg í vínbúðunum!) og því verð ég að einhverju leyti að reiða mig á aðrar úttektir, sem og eigið álit. Sænska tímaritið Allt om Vin fjallar í nýjasta eintaki sínu um bestu og verstu beljurnar í sænska Systembolaget, og þar sem margar þeirra fást líka í Vínbúðunum er tilvalið að renna yfir bestu og verstu kaupin, að mati Allt om Vin. Sænska flokkunin er á þá leið að tekið er tillit til bæði verðs og gæða og vínum skipt í 5 meðmælaflokka. Þannig getur gott vín sem er verðlagt allt of hátt (að mati AoV) fallið niður um flokk/flokka en ódýrari (lakari?) vín komist hærra:
- Fynd! – Vín í þessum flokki búa yfir óvenjumiklum gæðum miðað við verð og hér er verið að gera reyfarakaup.
- Bästa Köp! – Mikil gæði miðað við verð. Góð kaup!
- Rekommenderas – Vel hægt að mæla með víninu á þessu verði.
- Prisvärda – Sanngjarnt verð fyrir vín í þessum gæðaflokki.
- Ej Prisvärda – Vínið er of dýrt og einfaldlega ekki peninganna virði.
Af þeim vínum sem Allt om Vin fjallar um og eru fáanleg í vínbúðum ÁTVR þá falla eftirfarandi vín í 3 efstu flokkana. Athugið að vín sem vín sem fara í flokk nr 4 eru ekki með í þessari upptalningu, og það að vín sé hvorki á lista yfir bestu eða verstu kaupin þýðir ekki að þau beri að varast – þau eru annað hvort á sanngjörnu verði eða ekki fáanleg í Svíþjóð.
Hvítvín
- Robertson Chardonnay 2013 – 5.999 kr – Fynd!
- Drostdy-Hof Chardonnay Viognier 2013 – 5.898 kr – Rekommenderas
Rauðvín
- Robertson Cabernet Saugvignon 2013 – 6.399 kr – Fynd!
- Barone Ricasoli Formulae 2012 – 6.990 kr – Rekommenderas
- il Conte Primitivo Negroamaro 2012 – 6.397 kr – Rekommenderas
- J.P. Chenet Cabernet Syrah 2013 – 5.999 kr – Rekommenderas
- Masi Modello delle Venezie 2012 – 6.650 kr – Rekommenderas
Eftirfarandi vín fara í neðsta flokkinn, þ.e. þau eru of dýr miðað við gæði og skynsamlegra væri að velja eitthvað annað.
Hvítvín
- Lindemans Chardonnay 2013 – 6.799 kr
- Castillo de Gredos – 4.799 kr
- Guntrum Riesling 2013 – 4.499 kr
- Moselland Rieslind Kabinett 2013 – 4.499 kr
- Black Tower Rivaner Riesling 2013 – 4.499 kr
- Vina Maipo Chardonnay 2013 – 5.699 kr
Rauðvín
- Castillo de Gredos Rautt – 5.099 kr
- Vina Maipo Cabernet Sauvignon 2013 – 5.199 kr