Í nýjasta Advance-fréttablaðinu frá Wine Spectator eru nokkur vín sem eru fáanleg í vínbúðunum hér heima (hafa a.m.k. verið til í öðrum árgöngum). Þessi vín flokkast undir að vera „smart buy“ og eru í raun gamlir kunningjar þeirra sem versla hafa í vínbúðunum í gegnum árin.
- Bodegas Campo Viejo Tempranillo Rioja Reserva 2008 – 89 punktar, kostar 2.499 kr
- Columbia Crest Merlot Columbia Valley Grand Estates 2011 – 89 punktar, kostar 2.999 kr
- Rosemount Chardonnay South Australia Diamond Label 2012 – 89 punktar, kostar 2.499 kr
Spánverjinn er skv. heimasíðum vínbúðanna til í 2008-árgangnum en hin vínin í eldri árgöngum. Þó best að athuga það því ég treysti ekki alltaf árgangsupplýsingunum á heimasíðunni (sem mætti svo sem betrumbæta á margan hátt…).