Hingað til hefur ekki verið hægt að hrópa húrra fyrir öllum lífrænt ræktuðum vínum en af og til rekst maður á góð, lífræn vín. Eitt þeirra er Beronia Vina Ecologica Rioja 2010. Ég prófaði þetta í fyrravor (man ekki hvort það var sami árgangur eða 2009) og var bara nokkuð sáttur við það þá. Vínið er fallega rautt, unglegt en byrjandi þroski. Í nefinu plómur, amerísk eik, pipar, fjólur og vottur af dökku súkkulaði. Aðeins kryddað. Tannín, ríkuleg sýra, dálítið eikarbragð sem heldur sér út í nokkuð langt og þægilegt eikarbragð. Vel gert vín. Einkunn: 7,0. Vínið kostar 2.298 krónur og það eru ágætis kaup.