Um daginn opnaði ég Torres Cabernet Sauvignon Gran Reserva Mas La Plana 2006 – vín sem hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér og ég varð ekki fyrir vonbrigðum í þetta skipti. Vínið er enn ungt og á eftir að batna með geymslu í nokkur ár til viðbótar. Í nefinu er góð leður- og berjalykt, smá tóbak og krydd. Vínið er vel tannískt, góð fylling og þétt eftirbragð sem heldur sér vel. Smellpassaði við nautalundina! Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!