Þrátt fyrir að það væri bóndadagur í dag þá kom það samt í minn hlut að sjá um matinn í kvöld – ekki það að ég hafi neitt á móti því, enda kann ég vel við mig í eldhúsinu! Ég eldaði roastbeef með sveppasósu, salati og kartöflum og var bara nokkuð ánægðum með útkomuna (kjötið var kannski aðeins of lengi í ofninum, því eldri dótturinni (sem verður 8 ára eftir viku) fannst kjötið ekki nógu rautt). Með þessu drukkum við Port Phillip Estate Shiraz 2006, en það kom í kassa sem ég pantaði rétt fyrir jól frá Antipodes wines. Þetta vín kemur frá Victoria í Ástralíu, nánar tiltekið frá Mornington-skaga nálægt Melbourne. Vínið fékk að liggja 16 mánuði í tunnum úr franskri eik og það leynir sér ekki, hvorki í lykt né bragði! Vínið er nokkuð dökkt eins og shiraz á að vera, unglegt með sæmilega dýpt. Í nefinu er franska eikin mjög áberandi ásamt rósmarín og vott af vanillu og lakkrís. Í munni finnur maður áfram fyrir eikinni en einnig smá pipar og rósmarín. Þokkaleg fylling. Eftirbragðið kryddað og heldur sér þokkalega. Einkunn: 7,0.
Það bíður mín kassi af Brancaia Tre 2007 í vínbúðinni minni og ég hef hugsað mér að sækja hann á morgun. Þá verða vínkælarnir mínir komnir í einstaklega gott ástand og hætt við að ég þurfi að fara að leita mér að stærri vínkæli…