Undanfarin ár hafa verið góð fyrir spænska vínframleiðendur sem og unnendur spænskra vína. Nánast allir árgangar síðan árið 2000 hafa verið mjög góðir, einkum í Ribera del Duero og Priorat. Rioja hefur einnig fengið sín góðu ár, en 2002 var þó nokkuð lakari þar en í hinum héruðunum. Penedés og Navarra hafa einnig verið nokkuð góð undanfarin ár. Nú fara 2007-vín (og sum 2008) að birtast í hillum vínbúðanna og líkt og undanfarin ár er þetta mjög góður árgangur, einkum í Priorat og Ribera del Duero. Í Rioja er hann góður en ekki í alveg sama gæðiflokki og í hinum héruðunum. Okkur hafa staðið til boða góð vín á góðu verði, og nánast verið hægt að ganga að gæðunum vísum í flestum spænskum vínum undanfarin ár, og það er ekki útlit fyrir neina breytingu á því.
Héraðið Toro er gamalt vínræktarhérað sem lengi hefur staðið í skugganum af þekktari héruðum Spánar. Það hefur þó fengið mikla andlitslyftingu undanfarin ár og víngerð þar hefur tekið miklum framförum. Fremstur í flokki er framleiðandinn Numanthia-Termes, en vínið Termes 2005 fær 96 punkta hjá Wine Spectator og er í öðru sæti á topp 100-lista ársins. Enn sem komið er eru fá vín þaðan fáanleg í Systembolaget (flest á sérpöntunarlista), og engin fáanleg á Íslandi.
Að lokum læt ég fljóta með árgangstöflur Wine Spectator fyrir Ribero del Duero, Rioja og Priorat.
Árgangur | Priorat | Ribera del Duero | Rioja |
---|---|---|---|
2007 |
84-87
|
85-88
|
83-86
|
2006 |
89
|
90
|
88
|
2005 |
93
|
95
|
92
|
2004 |
93
|
96
|
93
|
2003 |
91
|
94
|
87
|
2002 |
90
|
87
|
84
|
2001 |
95
|
93
|
93
|
2000 |
92
|
92
|
85
|