Ég er alltaf spenntur að fá fréttir af nýrri vínuppskeru, og eins og venjulega koma fyrstu fréttirnar af suðurhveli jarðar:
- Argentína – Sumarið var þurrt og heitt, jafnvel of heitt fyrir grænu þrúgurnar en rauðvínin ættu að verða nokkuð góð.
- Ástralía – Þrátt fyrir mikla hitabylgju í ársbyrjun eru vínbændur í Ástralíu nokkuð bjartsýnir á uppskeruna. Shiraz og Cabernet Sauvignon ættu að verða mjög góð, einkum vín frá McLaren Vale.
- Chile – Sumarið var þurrt og heitt, en vínin ættu að vera nokkuð góð í flestum héruðum.
- Nýja-Sjáland – Sumarið var nokkuð gott á Nýja-Sjálandi. Í Marlborough (syðri eyjan) eru menn mjög ánægðir með Sauvignon Blanc og bæði Pinot Noir og Sauvignon Blanc koma einnig vel út í Martinborough (nyrðri eyjan).
- Suður-Afríka – Uppskeran þykir einstaklega góð og flestir vínbændur í skýjunum, einkum þeir í Stellenbosch og Paarl.
Sem sagt, Chile og Suður-Afríka þegar kemur að 2009 árgangnum, ásamt Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi!