Á skírdag prófaði ég Concha y Toro Casillero del Diablo Merlot 2008. Þetta er 12. árgangurinn í röð sem ég prófa af þessu annars ágæta víni og ég er eiginlega alltaf jafn ánægður með það. Dökkt og fallegt í glasi en þó ekki með mjög mikla dýpt. Kirsuber, plómur og pipar í ilminum og í munni koma einnig fram kryddjurtir og ameríska eikin verður líka meira áberandi. Gott eftirbragð sem endist þokkalega. Gott vín með grillmat og ostum.