Á föstudaginn eldaði ég ofnbakaðan lax á grænmetisbeði og svepparisotto. Tókst auðvitað alveg stórkostlega vel og með þessu drukkum við E. Guigal Condrieu 2005 – hreint Viognier líkt og svo mörg önnur hvít rónarvín. Gullið vín og fallegt í glasi. Sítrusaldin (einkum greip), eik, smá krydd og steinefnakeimum, fjólur og möndlur – seiðandi ilmur! Í munni örlítill hunangs- og steinefnakeimur, góð sýra en full mikil eik. Ákaflega gott vín!