Ágætis rauðvín frá Veróna-héraði á Ítalíu. Allegrini er einn af stærri og betri framleiðendunum á þessu svæði og ég kynntist nokkrum af vínum Allegrini þegar fjölskylda mín var stödd við Garda-vatn í fyrra. Í kvöld eldaði ég rifjasteik (uppskrift í Landsliðsbók Hagkaupa) og ákvað að fá mér La Grola 2005 með því. Þetta er ekki dýrt vín, kostar um 150 SEK (mörgum þykir það þó í hærra lagi hér í Uppsölum). 2005 var mjög góður árgangur á Ítalíu og Veróna-svæðið er engin undantekning frá því.
Vínið er ennþá nokkuð ungt að sjá, ágætlega dökkt og fallegt í glasi. Dálítil spíralykt kemur fyrst fram en svo finnur maður ber, pipar og smá súkkulaði – ekki mjög flókin lykt. Vínið er nokkuð þurrt, nóg af tannínum og ágæt sýra – nokkuð gott jafnvægi. Eftirbragðið nokkuð gott og í meðallagi langt. Ágæt kaup.