Nú á nýhöfnum krepputímum þykir við hæfi að skoða hvað stendur til boða í formi kreppuvína. Líklega þarf aðeins að lækka markmiðin þegar farið er í Ríkið, enda buddan væntanlega léttari en oft áður. Að skera niður rauðvínsdrykkjuna er þó alveg út í hött, enda rauðvín í hófi gott fyrir heilsuna.
Ég á yfirleitt eitthvert kassavín uppi í skáp og það er látið duga þegar við ætlum bara að fá okkur eitt glas í miðri viku. Niðurstöður gæðarannsókna á kassavínum sem fáanleg eru í minni vínbúð benda til þess að menn ættu að vera vakandi fyrir þessum kassavínum:
- Barone Ricasoli Formulae – formúluvín frá Toscana, plómur og eik, ágætis matarvín.
- Drosdty-Hof Shiraz Pinotage – Suður-Afrískt vín með berjakeim, kryddað og örlítið reykbragð.
- Roodeberg – annað S-Afríkuvín, berja- og eikarkeimur, hæfir ágætlega með kjötkássunni.
- Infinitus – Cabernet Sauvignon og Tempranillo, dæmigerður spánverji með eikar-, kirsuberja- og kryddkeim.
- J P Chenet Cabernet Syrah – ódýr frakki með berjabragði, dugar ágætlega, samt pínu væmið.
Annars er kannski best að eiga nóg af Rosemount Shiraz, Lindemans Bin 50 Shiraz eða Casillero del Diablo Merlot í kælinum. Sunrise er samt alveg bannað, hvort sem um er að ræða Cabernet eða Merlot!