Ég hef verið frekar slappur við vínrannsóknir undanfarna daga, enda mikið að gera í vinnunni. Fólk heldur áfram að vera lasið óháð efnahagsástandinu. Hef reyndar ekki orðið var við aukna magasárstíðni á bráðamóttökunni en það kemur kannski síðar. Hins vegar býst ég við að sala á úrvalsvínum muni eitthvað dragast saman og vonandi að það leiði til einhverrar verðlækkunar. Nú er nefnilega hinn stórfenglegi 2005 árgangur af Bordeaux að detta inn í vínbúðirnar hérna og verðið auðvitað í sömu hæðum og umsagnirnar um vínin. Ég held því að það sé kominn tími til að líta betur á aðra og efnahagslega hagkvæmari kosti í vínbúðinni minni. Stefnt er að fyrstu rannsóknarferðinni nú á föstudaginn og greint verður frá afrakstrinum á næstu dögm.