Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina. Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur – auðvitað kallar það á gott vín.
Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað. Nokkuð einföld lykt – leður, pipar, sólber – en reyndar ekki auðvelt að greina lyktina nánar þegar maður er úti. Töluvert eftir af tannínum, sýran nokkuð farin að gefa eftir. Góð fylling og þétt eftirbragð sem þó var heldur í styttri kantinum. Smellpassaði við lambakjötið. Góð kaup. Ég myndi þó ekki geyma það mjög lengi í skápnum, a.m.k. ekki mikið lengur en 3-5 ár.